thjonustumidstod-framtidarinnar

VELKOMIN Í LAUFEY WELCOME CENTER

VELKOMIN Í LAUFEY

Laufey tekur þér opnum örmum og býður upp á frábæra og nýstárlega þjónustu við þjóðveginn. Við bjóðum upp á ljúffengar veitingar og kaffi í Laufey Bistró, hreinustu almenningssalerni í heiminum, átta öflugar hraðhleðslustöðvar, snjallverslun með alla helstu drykki og snarl ásamt vörum frá Varma og Rammagerðinni. Í Laufey eru einnig einstakir gagnvirk upplýsingaborð með alla þjónustu í nærsveitum og víðar auk upplýsinga um ferðir og bókanir Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum.  

 
 
islenskur-markadur

LAUFEY BISTRO

Láttu matseðilinn hjá Bistró koma þér skemmtilega á óvart og búðu þig undir að njóta betri veitinga en þú átt að venjast við þjóðveginn. Fyrir utan frábæra hamborgara má finna súpur, salöt og rétti eins og lambaskanka, fiskibollur, nauta-brisket að ógleymdu fish´n´ chips sem slær alltaf í gegn.

www.laufeybistro.is

hledsla-fyrir-bifreidar

RAFHLEÐSLA

Laufey bíður upp á átta KEMPOWER hleðslustöðvar sem hlaða allt að 240kW. Boðið er upp greiðslu í gegnum hið stórfína E1 app, en einnig er hægt að hlaða með einfaldri greiðslu í gegnum posa án aðkomu greiðslulykla eða snjallforrita í síma.

snjallbord

GAGNVIRK UPPLÝSINGABORÐ

Í þjónusturými eru gagnvirk upplýsingaborð með snertiskjám. Í þeim verður að finna upplýsingar um athyglisverða viðkomustaði og þjónustuframboð nærumhverfisins. Hægt verður að nálgast lýsingar á nokkrum tungumálum, skoða ljósmyndir og myndbönd, auk þess að bóka ferðir og gistingar.

snjallsjalfsalar

SNJALLVERSLUN

Allir helstu drykkir bíða þín ískaldir ásamt góðu úrvali af snakki, sælgæti, próteinsstykkjum, samlokum og vörunum sem þú gleymdir heima. Þú græjar þig sjálfur, skannar og borgar á stórum og þægilegum skjám sem allir geta notað.

snjallsalerni

SJÁLFHREINSANDI SNÚNINGSSALERNI

Hreinustu almenningssalerni í heiminum er stór fullyrðing en sönn engu að síður. Sjálfhreinsandi snúningssalernin frá Sanitronics í Hollandi eru með notalegum setum sem koma hreinar og þurrar úr djúphreinsun fyrir hvern notanda. Hvert salerni er í raun með tvær salernisskálar. Á meðan ein er í notkun er verið að þrífa hina á bak við vegginn, og biðtími því undir 20 sekúnum. Allt er snertilaust. Gólfið er einnig tekið í gegn eftir hverja notkun með háþrýstisprautum. Allt tandurhreint fyrir hvern einn og einasta gest á salernið.

Salerni Laufeyjar verða opin allan sólarhringinn.